Fossatún er með síðu á Facebook.

Leitaðu að Fossatún eða smelltu á tengilinn hér að neðan.

 
Hljóðdæmi

Skref 1

Skref 2

Forsíðan

Velkomin í Fossatún 

"Einn fegursti staður við árnar í Borgarfirði, finnst mér vera við Grímsá, ofan og neðan við Fossatún."

(Gísli Sigurðsson úr bókinni Seiður Lands og Sagna III)

 Staðsetning - Kort

 

Skoða yfirlitsmynd

 

 

Myndir af svæði og mannlífi

 

Myndir: Tröllaganga

 

Myndir: Verslunarmannahelgin 2010 

 

Upplýsingar um tjaldsvæði: Velkomin í Fossatún

 

Opnunartími eftir 15. ágúst

Mánudagar - fimmtudagar: Lokað

 

Föstudagar - sunnudagar: 10-21

Eldhús veitingastaðar opið 11:30-14:00 og 18:00-20:30

 ATH: Veitingahúsið er lokað laugardagskvöld 21. ágúst vegna einkasamkvæmis

Í Berjamó

Að fara í berjamó er skemmtileg iðja sem sameinar fjölskylduna. Það er allt krökkt af berjum hér í Fossatúni allstaðar eru  breiður af krækiberjum og bláberjum. Aðgengi er öllum auðvelt og því varla þarf að bregða sér út af göngustígunum til að fylla fötu á örskömmum tíma. Gestum er velkomið að verða sér út um þessa búbót með því að tína öll þau ber sem þeir geta. Af nógu er að taka!

Tröllagarðurinn

Fyrst áfangi tröllagarðsins var opnaður um síðustu helgi og við mikla lukku viðstaddra. Í tröllagarðinum gefst gestum kostur á að hitta Grýlu og fleiri tröll, kynnast sögum og náttúru staðarins og síðast en ekki síst fara í tröllaleiki. Tröllagarðurinn er einstök upplifun ekki einungis fyrir börnin heldur ekki síður þá sem eldri eru.

Skoða

 

Gönguleiðir

Göngustígar hlykkjast um og opna landið niður að  kjarri vöxnum  ásum og meðfram Blundsvatni þar sem er ótrúleg fegurð og fjölbreytt fuglalíf. Auk þess sem fjallahringurinn verður óviðjafnanlegur því það sést til jöklanna í austri á þessari leið og svo er þetta einstök kvöldsólarganga.

 

Múlaþor

Svo er hægt að ganga á Varmalækjarmúla - Múlaþor köllum við það. Múlinn er 260 m. hár og ganga upp hann tekur 45-60 mín. Útsýinið uppi er algjörlega óviðjafnanlegt. Þeir sem leggja í Múlaþor finna kassa með stimpli og geta skráð sig í móttöku Fossatúns inn í þartilgerða bók. Dregin verða út verðlaun í haust fyrir heppna göngugarpa!

 

  

Ævintýri Sögu og Jökuls og ís í kaupbæti

 

Kynnist Sögu og Jökli í Fossatúni. Hver barnafjölskylda sem gistir á tjaldsvæðinu í Fossatúni fær afhenta möppu þar sem hægt er að safna sögum um hina hugmyndariku Sögu og vin hennar, álfastrákinn Jökul. Ævintýri Sögu og Jökuls er samstarfsverkefni 10 ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi.

Skoða betur

 

Tjaldsvæði og tilboð

Verðið á tjaldsvæðinu innifelur: aðgengi að sturtum, heitum pottum, mini-golfi og öðrum leiktækjum og fyrir þá sem mæta með fartölvuna er frítt netsamband í klukkutíma á dag úti á tjaldsvæðinu og heitum reit "hot spot" í veitingahúsinu. 

 

Tilboð í gangi -  tvær nætur fyrir verð einnar á milli helga og þrjár fyrir tvær um helgar. Tilboðin gilda fyrir gistinætur  en ekki þjónustuþátt s.s. rafmagn.

 

Staðsetning er í miðjum Borgarfirði, einstaklega hentug ef fólk vill skoða sig aðeins um á Vesturlandi og sækja aðra þjónustu eins og t.d. fara í sund eða skoða söfn. 

 

Skoða: Tjaldsvæði 

     

 Fossatún - tilvalinn áfangastaður 

Fossatún er staðsett i miðjum Borgarfirði. Hingað koma hópar og dvelja hér í einhverja klukkutíma sem hluti af dagsferð um Borgarfjörð eða til ráðstefnu- og fundarhalda og dvelja þá daglangt. Helstu kostir sem gera Fossatún að eftirsóknarverðum áfangastað fyrir einstaklinga og hópa eru:  

Frábær matur - hagstætt verð

Fjölbreytt afþreying

Einstök námund við fallega náttúru.

Hlýleg og falleg húsakynni.

Góð aðstaða fyrir hópa og til smærri funda.

  

Hópmatseðlar

Ferskur, heimagerður matur með stíl.

Gott úrval, hagstætt verð.

Afþreying

Móttaka

Staðahaldari tekur á móti gestum og segir frá staðnum og umhverfinu.

Hljómfagra Ísland

24 mínútna hrífandi stuttmynd þar sem íslensk tónlist og íslenskt landslag fallast í faðma.

Tröllaganga

Létt ganga þar sem útsýni, náttúra sögur og örnefni eru í hávegum, áhyggjur eru losaðar, ásamt því að stofnað er til kynna við tröll.

Skemmtilegir leikir - spennandi keppni

Mini-golf, skriðkringla, kúluspil og útikeila

Heitir pottar og sturtur

Góð aðstaða.

Vinyl plötusafnið

Hægt að finna ýmislegt forvitnilegt og rifja upp góða tíma

Karaoke-keppni

Skemmtilegur samkvæmisleikur milli borða/liða.

Tjúllum og tjei

Stuðtónlist í góðu hljómkerfi.

Upplýstir Tröllafossar

Þegar rökkrið sígur á. 

 

 


Fossatún ehf Fossatúni Sími: 433 5800 GSM (Steinar):   893 9733  Veffang:   www.fossatun.is
Borgarbyggð 311 Borgarnes kt. 640210–0360 GSM (Ingibjörg) 892 2013  Netfang: upplysingar@fossatun.is